|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 06 júlí 2010 14:54 |
|
Ásborg verður lokuð frá og með 12. júlí til og með 6. ágúst vegna sumarleyfa. Við opnum aftur mánudaginn 9. ágúst á venjulegum tíma 7.30. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 06 júlí 2010 14:47 |
|
Nýr deildarstjóri hefur verið ráðinn á Ás. Hún heitir Guðný Elísa Guðgeirsdóttir og er leikskólakennari.
Guðný Elísa hefur störf´um mánaðarmótin ágúst september. |
|
föstudagur, 16 apríl 2010 12:52 |
|
Barnamenningarhátíð
Í næstu viku er barnamenningarhátíð í Reykjavík. Hátíðin fer fram víðsvegar um borgina; ofan í sundlaugum, uppi í Esjuhlíðum, á skólalóðum, á öldum ljósvakans og á götum úti.
Hátíðin fjallar um menningu barna, menningu með börnum og menningu fyrir börn.
Við í Ásborg ætlum að sjálfsögðu að taka þátt og verður ýmislegt skemmtilegt á dagskrá.
Einnig viljum við benda foreldrum og öðrum áhugasömum á mjög fjölbreytta dagskrá hátíðarinnar sem hægt er að nálgast á vefslóðinni barnamenningarhatid.is og á heimasíðu leikskólans Asborgin.is.
Góða skemmtun
Starfsfólk og börn í Ásborg
|
|
Barnamenningarhátíð í Ásborg |
|
|
|
|
föstudagur, 16 apríl 2010 12:45 |
|
Barnamenningarhátíð 19 -23 Apríl
Langholt: Verður með myndlistarsýningu á Hrafnistu
Mánudaginn 19 Apríl kl 13:00 setjum við upp sýninguna og kl 13:30 verður formleg opnun og þá ætla börnin að syngja 2 lög.
Sýningin mun standa yfir til 23 Apríl.
Dyngjan: Ætlar að bjóða yngri deildum á söngskemmtun í salnum hér í Ásborg.
Barnhóll: Miðvikudaginn 21. Apríl ætla börnin á Barnhól að mála stórt útilistaverk á byggingarplast , það verður til sýnis fyrir foreldra og börn.
Ás: Verður með myndlistasýningu í safnaðarheimilinu í Áskirkju. Sýningin verður sett upp þriðjudaginn 20 Apríl kl 14:00 og verður til 27 Apríl.
Langisandur: verður með myndlistasýningu í elstu sjoppu landsins Sunnutorgi..
Álfabrekka: Verður með eitt stórt samvinnuverkefni á myndlistarsýningu á Hrafnistu.
|
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 15 apríl 2010 13:30 |
|
Vegna eldgossins í Eyjafjallajökli og öskufalls frá því hefur Leikskólasvið Reykjavíkur haft samband við Landlæknisembættið.
Leiðbeiningar sem fengust hjá Landlæknisembættinu eru þær að á meðan ekki sé öskufall í Reykjavík sé öllu óhætt varðandi útiveru barna. Það er hins vegar sjálfsagt að fylgjast vel með hvort breytingar verða á vindátt og þá þeim leiðbeiningum sem gefnar verða út varðandi þetta. Heimasíða embættisins er á slóðinni http://www.landlaeknir.is/
Hér með er einnig slóð inn á frétt mbl þar sem fram kemur að tilmælin um rykgrímur eigi við þar sem um sjáanlegt öskufall sé að ræða. http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/04/15/folk_gangi_med_rykgrimur/
Einnig bendi ég á mbl.is veður en þar má finna upplýsingar um svifryk og loftgæði í Reykjavík.
Jóna Elín leikskólastjóri. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 5 |