Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Afmæli Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 03 febrúar 2010 12:35

 

                                         
                               Afmæli
Af  gefnu tilefni viljum við minna á reglur í sambandi við afmæli.
Það má koma með eitthvað eitt  t.d ís, köku eða möffins ( án sælgætis), snakk, ávexti, niðurskorið grænmeti og ídýfu, harðfisk.
 
Við biðjum ykkur um að virða þetta barnanna vegna.
                                        
 
Þorrinn blótaður Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 29 janúar 2010 11:49

 

Þorrinn blótaður í Ásborg.
Miðvikudaginn 5. febrúar  höldum við Ásborgarar „ þorrablót“.
Snemma morguns komum við saman skreytt víkingahjálmum og kyrjum þorrasöngva. Í hádegi og kaffi  gæðum við okkur á slátri , flatkökum og hangikjöti, sitjandi við langborð til hátíðarbrigða.  
 
Sumarlokun 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 28 janúar 2010 11:48

 

Lokað vegna sumarleyfa 12.7 til og með 6.8. 2010.
 
Að höfðu samráði við foreldraráð Ásborgar var eftirfarandi ákvörðun tekin:
 
Í ár verður Ásborg lokuð í fjórar vikur vegna sumarleyfa, frá 12. júlí til og með 6. ágúst. Við opnum aftur mánudaginn 9. ágúst.
 
Aðal ástæða lokunarinnar er sú að ekki fæst leyfi til að ráða fólk til sumarafleysinga. Tæp 90% starfsmanna Ásborgar á 27-30 daga í orlof.
 
Bestu kveðjur,
 
Jóna Elín Pétursdóttir leikskólastjóri
 
Myndasíðan:o) Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 03 nóvember 2009 12:49

Loksins, loksins.....er myndasíðan orðin virk

Við erum afskaplega ánægð með það og ætlum að vera dugleg að setja inn myndir.

Í tilefni dagsins voru teknar myndir af starfinu og eru þær í sameiginlegu albúmi.

Lykilorð á myndasíðu fáið þið á deildum barna ykkar.

Við vonum að þið njótið vel

 

 

 
Fréttir frá foreldrafélaginu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Fréttir frá foreldrafélaginu
fimmtudagur, 15 október 2009 11:21

Fyrsti fundur vetrarins í foreldrafélaginu var haldinn 13.október sl.  Á fundinum var ákveðið að árgjaldið verði 4.000 kr. sem innheimt er í einu lagi.   Að þessu sinni verða ekki sendir út greiðsluseðlar heldur birtast kröfurnar í heimabanka.  Þetta er gert til að spara kostnað. 

Fram að áramótum stefnir foreldrafélagið að því að hafa leiksýningu fyrir börnin, eina sýningu fyrir yngri börnin og aðra fyrir eldri börnin.   Ef þið vitið um einhverja áhugaverða sýningu þá endilega sendið Guðfinnu póst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið með ruslpóstssíu. JavaScript verður að vera virkt í vafranum þínum til að póstfangið sjáist. .  Jólaball Ásborgar verður haldið 18. desember og kostar foreldrafélagið jólasveina og jólagjafir fyrir börnin.   Á fundinum kom upp sú hugmynd að halda jólaballið utan leikskólans ef það kostar ekki mikið þannig að foreldrar geti mætt.  Þessi hugmynd er til skoðunar. 
 
Næsti fundur foreldrafélagsins verður haldinn þriðjudaginn 10 nóvember kl. 17:00 á kaffistofunni.  Við hvetjum foreldra til að mæta og hafa áhrif á starf félagsins.
 
Bestu kveðjur,
Stjórn Foreldrafélags Ásborgar
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 5

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Ásborg | Dyngjuvegi 18 | 104 Reykjavík | s: 553 1135 | Póstur | Viðburðir | Fréttir