Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Breytingar á deildum Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 16 júní 2009 15:08

 

Þann 10. ágúst munu öll börnin af Langholti og starfsmennirnir líka, taka sig upp og skipta um húsnæði innan skólans. Þau munu flytja í húsnæði Áss og deildin þeirra heitir þar með Ás. Elstu börnin í skólanum munu hins vegar leggja Langholt undir sig. Ástæða þessa er að elsti árgangurinn rúmast ekki á Ási vegna fjölda barnanna, en Ás er heldur minni en Langholt. Við trúum að þessi breyting verði bæði spennandi og skemmtileg og munum leggja okkar að mörkum til að svo megi verða.
Í ágúst kemur einnig nýr starfsmaður á deildina. Það er hún Juraté, en hún er að koma aftur úr eins árs fæðingarorlofi.
 
 
Næsta vetur verða öll börn fædd 2004 saman á deild og því munu þau flytja sig á Langholt eftir sumarfrí.  Starfsfólk Áss og Langasands mun sjá um flutningana ásamt börnunum sjálfum. Veturinn 2009-2010 eru þessir krakkar nefnilega elstu börn leikskólans, hópurinn þeirra heitir Snillingar  og þau eru orðin svakalega dugleg  
Starfsfólk nýju deildarinnar verður núverandi starfsfólk Áss.

 

 
Breyttur opnunartími Ásborgar Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
föstudagur, 29 maí 2009 11:32

Frá og með 1. júlí 2009 mun opnunartími leikskólans Ásborgar breytast á þann hátt að leikskólinn er opinn frá klukkan 7.30 á morgnana til klukkan 17.15 síðdegis. Ástæða þessarar breytingar er lítil nýting eftir klukkan 17.15.

 
Stelpur í starfskynningu Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 19 maí 2009 15:59

Í dag þriðjudag voru tvær stelpur úr 10. bekk í Vestmannaeyjum í starfskynningu hjá okkur í Ásborg. Þetta voru þær Anna Vigdís og Jenný. Það er gaman að segja frá því að Anna Vigdís er gamall nemandi Ásborgar. Stelpurnar voru hér frá 9.00-16.00 á Langasandi, Dyngju og Álfabrekku. Það var rosalega gaman að fá þær til okkar. og við vonum að þær hafi haft gagn og gaman af.

 
Sumarstarfsmenn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
mánudagur, 18 maí 2009 15:47

Nú er sumarstarf Ásborgar að hefjast og þeir tveir sumarstarfsmenn sem ráðnir hafa verið eru komnir í hús. Þetta eru þær Silja Konráðsdóttir sem verið hefur hjá okkur í nokkur ár í skilastöðu og fleiru og hefur nú hækkað við sig starfsprósentuna tímabundið. Hin er Kolbrún Gissururdóttir sem einnig er okkur kunn því hún hefur unnið hjá okkur áður. Kolbrún verður á Langholti til að byrja með og Silja um allt hús eða þar sem vantar fólk

.

 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Síða 5 af 5

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Ásborg | Dyngjuvegi 18 | 104 Reykjavík | s: 553 1135 | Póstur | Viðburðir | Fréttir