Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Umferðarskólinn Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
fimmtudagur, 08 apríl 2010 13:55

 

Umferðarskólinn    
 
   Miðvikudaginn 14. Apríl kl 9:30
Umferðarskólinn er fyrir elstu börnin og þar fá þau fræðslu um umferðarreglur og hvað þarf að hafa í huga úti í umferðinni.
Elstu börnin frá Vinagarði og Brákarborg ætla að koma og vera með okkur þennan morgun.
 
 
Innbrot í bíla Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
miðvikudagur, 10 mars 2010 11:50

 

Innbrot í bíla.
 
Af gefnu tilefni vil ég biðja fólk um að skilja ekki eftir verðmæti í bílum  á bílastæðum leikskólans eða skilja bílana eftir í gangi og ólæsta. Ástæða þessa er að nú undanfarið hefur verið brotist inn í bíla á bílastæðum leikskólanna í hverfinu, síðast nú í morgun 10. mars á bílastæði Ásborgar. Innbrotin eiga sér stað þrátt fyrir mikla umferð foreldra á bílastæðunum.
 
Skipulagsdagur 6. apríl 2010 Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
Almennar fréttir
þriðjudagur, 09 mars 2010 14:43

 

Lokað í Ásborg 6. apríl 2010
 
Þriðjudaginn 6. apríl er lokað í leikskólanum Ásborg vegna skipulagsdags starfsfólks.
Verkefni dagsins eru:
       Fyrirlestur um máltöku barna
       Starfsmannafundur
       Deildafundir
       Skipulagning sumarannar
       Skipulagning innritunar og flutnings barna milli deilda
Tekið skal fram að þennan dag er lokað í öllum leik- og grunnskólum hverfisins þennan dag.
                                                                                                                                             Jóna Elín leikskólastjóri
 
 
Öskudagsfjör Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
fimmtudagur, 11 febrúar 2010 15:57

Öskudagsfjör.

Miðvikudaginn 17. Febrúar er Öskudagurinn.

Eins og venjulega höldum við uppá daginn með því að klæða okkur upp, slá „köttinn“ úr tunninni og dansa svolítið.

Börnin mega mæta í búningum eða náttfötum.

 

 

 
Dagur leikskólans Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
miðvikudagur, 03 febrúar 2010 12:53

 

        Opið hús                                      
 
Í tilefni af degi leikskólans sem er laugardaginn 6. febrúar ætlum við hér í Ásborg að hafa opið hús föstudaginn 5 febrúar kl 8:00-10:00.
Klukkan 9:30 verður sameiginleg söngstund.
Við vonumst til að sjá sem flesta.
 
 
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 5

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Ásborg | Dyngjuvegi 18 | 104 Reykjavík | s: 553 1135 | Póstur | Viðburðir | Fréttir