|
Hér að neðan má finna ýmsar upplýsingar um starfið, reglur og siði á Ásborg. Viðfangsefninu er raðað í starfrófsröð.
|
|
|
Unnið er eftir stefnu Menntasviðs Reykjavíkur í málefnum barna af erlendum uppruna. Markmið leikskólans er að við berum virðingu fyrir öllu fólki. Við stuðlum að því að börn frá öðrum löndum verði virkir þátttakendur í nýju samfélagi án þess að glata tengslum við eigin menningu, tungu og trú. Börn fá stuðningstíma í íslensku þegar þess er þörf.
|
|
Gott foreldrasamstarf er mikilvægur þáttur í starfsemi hvers leikskóla. Markmið okkar, starfsfólks Ásborgar er að leggja okkur öll fram við að koma til móts við þarfir foreldra og barna eins og kostur er. Við starfsfólk og foreldrar höfum sameiginlegt markmið sem er vellíðan og þroski barnsins. Við viljum leggja áherslu á góð og dagleg samskipti þegar foreldrar koma með og sækja börn sín. Gagnkvæmur trúnaður milli foreldra og starfsfólks er ein af forsendum þess að barninu líði vel. Daglegar upplýsingar um barnið heima og í leikskólanum eru mjög nauðsynlegar. Sérstaklega er mikilvægt að foreldrar láti vita ef um breytingar er að ræða á högum barnsins t.d. flutningur, skilnaður, ástvinamissir, nýr einstaklingur inn á heimilið, langvarandi veikindi í fjölskyldunni o.s.f.r.v. Foreldraviðtöl eru haldin nokkrum dögum eftir að barn byrjar í leikskólanum og að auki tvisvar á ári í október-nóvember og mars-apríl. Foreldrar geta alltaf óskað eftir viðtali við deildar- og leikskólastjóra. Fundur fyrir foreldra nýrra barna er haldinn að vori. Foreldrum nýrra barna er jafnframt boðið upp á heimaviðtöl áður en barnið hefur skólagönguna. Markmiðið með heimaviðtölum er að kynnast börnunum og fjölskyldum þeirra í umhverfi þar sem fjölskyldan er á heimavelli og finnur til öryggis. Í heimaviðtölin fara tveir starfsmenn, sá aðili sem mun sjá um aðlögun barnsins og leikskólastjóri. Foreldrafundir eru haldnir að hausti. Þá er starf leikskólans á komandi vetri kynnt og foreldrafélagið er með kynningu. Fundir stjórnar foreldrafélags Ásborgar eru haldnir einu sinni í mánuði á kaffistofu Ásborgar. Þar eru allir foreldrar velkomnir.
|
|
Í leikskólanum er tekið tillit til þarfa hvers einstaks barns svo það fái notið sín með öðrum börnum á eigin forsendum. Sérhvert barn þarf að fá verkefni við hæfi til að styrkja sjálfsmynd og alhliða þroska þess. Það er markmið okkar að sérkennsla fari fram í barnahópnum sé þess kostur en í einstaka tilfellum fer sérkennsla fram utan hans.
|
|
Hópastarf Börnin læra að vinna saman í ákveðnum og krefjandi verkefnum. Þau læra að taka tillit til hvors annars, að fara eftir fyrirmælum, koma fram og tjá sig fyrir framan hópinn. Börnin eru í sama hópnum allan veturinn og með sama hópstjóra.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 5 |