|
Börnin gera sér og öðrum glaðan dag á afmælum. Vinsamlega hafið samráð við deildarstjóra ef ætlunin er að koma með veitingar handa öllum á deildinni. Ef það á að bjóða einhverjum börnum af deildinni heim í afmælisveislu hafið þá einnig samband við deildarstjóra. Ekki setja boðskort í hólfin. Það getur verið sárt að vera ekki boðin/nn.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Aðlögun er sá tími sem foreldrar eru með börnum sínum í upphafi leikskóladvalar. Þar er hornsteinninn lagður að öryggi og líðan barnsins í skólanum og samstarfi milli heimilis og leikskóla. Mikilvægt er að góð samvinna takist milli foreldra og starfsfólks. Þegar barnið byrjar í leikskóla er nauðsynlegt að hafa í huga þær breytingar sem það hefur í för með sér fyrir barnið. Það þarf að kynnast nýju umhverfi, starfsfólki, þeim börnum sem fyrir eru, læra að vera í hóp, venjast dagskipulaginu o.s.frv. Þetta á líka við um þau börn sem koma úr öðrum leikskóla eða frá dagmömmu. Það er einstaklingsbundið hve langan tíma það tekur hvert barn að aðlagast, yngra barn þarf oftast lengri aðlögun en eldra barn. Foreldrar skulu gera ráð fyrir a.m.k. viku í aðlögunina sem skipulögð er af deildarstjóra barnsins. Ef systkini byrja á sama tíma í aðlögun förum við fram á að tveir fullorðnir sjái um aðlögunina. Ef því er ekki við komið hafið þá samband við deildarstjóra.
|
|
Við upphaf leikskólagöngu er gerður skriflegur samningur milli foreldra og leikskóla um dvalartíma barnsins. Við biðjum foreldra að virða þennan samning því fjöldi starfsmanna fer eftir fjölda barna á hverjum tíma. Ef þörf er á að endurskoða samninginn þá vinsamlega hafið samband við leikskólastjóra eða aðstoðar-leikskólastjóra.
|
|
Þar eru börnin hvött til að klæða sig sjálf eftir getu og aldri. Ýtt er undir sjálfshjálp, samhjálp og tillitsemi. Því er mikilvægt að börnin klæðist einföldum fötum sem þau geta klætt sig í sjálf. Þar læra börnin einnig að klæða sig með tilliti til veðurs. Í fataklefanum læra börnin að ganga vel frá útifötunum og almenna snyrtimennsku.
|
|
Foreldrar eru beðnir um að láta vita um allar breytingar á mætingu barnsins, t.d. ef barn er veikt eða í fríi.
|
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 4 |