Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Þriðjudagur 25. maí Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil
þriðjudagur, 25 maí 2010 13:26

 

Þriðjudagur 25. maí

Jæja, þá er vorið komið í allri sinni dýrð, sólin farin að skína og við orðin léttklæddari. Starfsfólkið á Langasandi langar að minna foreldra á að bera sólarvörn á börnin á morgnana, áður en þau koma í leikskólann. Buff, derhúfur, strigaskór og léttar peysur eru góðar í töskuna þegar að það viðrar eins og í dag. Við viljum líka minna á að hafa með aukaföt því slys geta alltaf gerst (og eru alltaf að gerast)    Svo er ráð að kíkja á pollagallana, börnin hafa tekið stóran vaxtakipp og sum þeirra eru að vaxa upp úr pollagöllunum sínum.
Vetrarstarfi hjá okkur er lokið. Síðasti hópastarfsdagurinn var sl. fimmtudag og hefst sumarstarfið nk. mánudag.  Á sumrin förum við út tvisvar á dag en tvisvar í vikur eru leikir, krítar, sippubönd og fleira skemmtilegt í garðinum. Einnig höldum við áfram að fara í gönguferðir, þær verða á dagskrá einu sinni í viku og geta gönguleiðir lengst núna.
Í dag erum við að skoða upptökur af Heru Björk og Eurovisionförunum og æfa lagið góða. Við ætlum að fylgjast spennt með í kvöld þegar að þau fara á sviðið og segum ÁFRAM ÍSLAND
Opna húsið og grillhátíðin verða föstudaginn 4. Júní. Opið hús verður frá kl. 14.00 – 14.45 og þá ætlum við að sýna gestum og gangandi afrakstur vetrarins og skólann okkar og síðan tekur grillhátíðin við og verður hún til kl. 16.00. Við vonumst til að sjá sem flesta og auðvita verða allir með góða skapið og brosið í farteskinu. Hlökkum til að sjá ykkur og segjum aftur og enn ÁFRAM ÍSLAND

 

 

Fjólublár dagur

 

 

 

Viðburðir

Engir viðburðir

Matseðill dagsins

Matseðill mánaðarins

 
 Leikskólinn Ásborg | Dyngjuvegi 18 | 104 Reykjavík | s: 553 1135 | Póstur | Viðburðir | Fréttir