|
Við Ásborg er starfandi foreldrafélag. Aðild að félaginu er frjáls. Í stjórn félagsins höfum við lagt áherslu á að einn til tveir fulltrúar séu frá hverri deild. Einn starfsmaður er ennfremur tengiliður stjórnar foreldrafélagsins við leikskólann og situr fundi stjórnar. Fundir stjórnarinnar eru öllum foreldrum opnir og eru haldnir á kaffistofunni kl. 17.00, oftast á þriðjudegi fyrrihluta mánaðar. Gjald í foreldrafélagið er 4000.- kr. á ári. Aðeins er greitt eitt gjald í foreldrafélagið þó um systkini sé að ræða. Formaður foreldrafélagsins heitir Haraldur A. Bjarnason og er foreldri á Dyngju.
|