|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 06 júlí 2010 14:54 |
|
Ásborg verður lokuð frá og með 12. júlí til og með 6. ágúst vegna sumarleyfa. Við opnum aftur mánudaginn 9. ágúst á venjulegum tíma 7.30. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 06 júlí 2010 14:47 |
|
Nýr deildarstjóri hefur verið ráðinn á Ás. Hún heitir Guðný Elísa Guðgeirsdóttir og er leikskólakennari.
Guðný Elísa hefur störf´um mánaðarmótin ágúst september. |
|
Fréttir frá Langasandi
|
|
þriðjudagur, 25 maí 2010 13:26 |
|
Þriðjudagur 25. maí
Jæja, þá er vorið komið í allri sinni dýrð, sólin farin að skína og við orðin léttklæddari. Starfsfólkið á Langasandi langar að minna foreldra á að bera sólarvörn á börnin á morgnana, áður en þau koma í leikskólann. Buff, derhúfur, strigaskór og léttar peysur eru góðar í töskuna þegar að það viðrar eins og í dag. Við viljum líka minna á að hafa með aukaföt því slys geta alltaf gerst (og eru alltaf að gerast) Svo er ráð að kíkja á pollagallana, börnin hafa tekið stóran vaxtakipp og sum þeirra eru að vaxa upp úr pollagöllunum sínum.
Vetrarstarfi hjá okkur er lokið. Síðasti hópastarfsdagurinn var sl. fimmtudag og hefst sumarstarfið nk. mánudag. Á sumrin förum við út tvisvar á dag en tvisvar í vikur eru leikir, krítar, sippubönd og fleira skemmtilegt í garðinum. Einnig höldum við áfram að fara í gönguferðir, þær verða á dagskrá einu sinni í viku og geta gönguleiðir lengst núna.
Í dag erum við að skoða upptökur af Heru Björk og Eurovisionförunum og æfa lagið góða. Við ætlum að fylgjast spennt með í kvöld þegar að þau fara á sviðið og segum ÁFRAM ÍSLAND
Opna húsið og grillhátíðin verða föstudaginn 4. Júní. Opið hús verður frá kl. 14.00 – 14.45 og þá ætlum við að sýna gestum og gangandi afrakstur vetrarins og skólann okkar og síðan tekur grillhátíðin við og verður hún til kl. 16.00. Við vonumst til að sjá sem flesta og auðvita verða allir með góða skapið og brosið í farteskinu. Hlökkum til að sjá ykkur og segjum aftur og enn ÁFRAM ÍSLAND 
Fjólublár dagur

|
|
Fréttir frá Langasandi
|
|
miðvikudagur, 12 maí 2010 08:53 |
|
Risaeðluprinsessur og Skrímsli fóru í sína vikulega gönguferð í gær.
Runnarnir eru að verða grænir
og tréð er byrjað að grænka 
Við fundum blóm
og lærðum að þau heita Páskaliljur, Fíflar og ...bleik kúlublóm

Flórubókin okkar finnst ekki svo við getum ekki fundið nafnið á bleika kúlublóminu :) en ef einhver veit nafnið væri það vel þegið að fræða okkur. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 5 6 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 6 |